Vissulega ekki „bær“ en Skagafjörður verður að fá veggspjald í seríunni. Það var heldur betur af miklu að taka, enda Skagafjörður algjör paradís náttúrufegurðar og menningar.
Mælifellshnjúkurinn, Laufskálarétt, Glaumbær, Fljótin, Grettislaug, Drangey, Héraðsvötnin, búskapur, hestamennska og söngur – svo eitthvað sé nefnt!
Bærinn minn er veggspjalda sería sem hefur það að markmiði að fanga og hvers staðar á skemmtilegan og rómantískan hátt, með myndskreytingum af helstu áhrifum sem saman mynda fallega heildarmynd. Veggspjaldið sómar sér vel á heimilum bæjarbúa en eru ekki síður frábær tækifærisgjöf fyrir brottflutta sem vilja minnast heimahaganna.
Athugið að veggspjaldið er án ramma.
Hægt að velja um stærð A4(21x30cm) eða 30x40cm.
Prentað á hágæða Canon ljósmyndapappír.
HN Gallery er íslenskt hönnunarfyrirtæki sem leitast eftir því að styrkja íslenska hönnun. Með samstarfi við fjölda íslenskra fyrirtækja munum við bjóða upp á fjölbreytt vöruúrval af framúrskarandi hönnunarvörum þar sem lagt er áherslu á gæði og nýsköpun.