Vörulýsing
Bærinn minn: Skagaströnd – Veggspjald
Skagaströnd, heimahagarnir!
Forn verslunarstaður og fallegur smábær þar sem Spákonufell blasir við. Fallegar gönguleiðir, kyrrð og dulúð. Falleg nútímaleg kirkja í bland við gömul heillandi hús. Spádómar, listsköpun og notaleg stemming!
Bærinn minn er veggspjalda sería sem hefur það að markmiði að fanga anda hvers staðar á skemmtilegan og rómantískan hátt, með myndskreytingum af helstu kennileitum sem saman mynda fallega heildarmynd. Veggspjaldið sómar sér vel á heimilum bæjarbúa en er ekki síður frábær tækifærisgjöf fyrir brottflutta sem vilja minnast heimahaganna.
Athugið að veggspjaldið er án ramma.
Hægt að velja um stærð A4(21x30cm) eða 30x40cm.
Prentað á hágæða Canon ljósmyndapappír.