Vörulýsing
Yndislega mjúkur og góður barnakragi sem er saumaður úr ullarblöndu sem er vélprjónuð hér á Íslandi. Kraginn er fóðraður að innan með jersey efni. Hægt er að þvo kragann á ullarþvotti í þvottavél.
Efnið er hannað út frá íslenska stuðlaberginu – í Kálfshamarsvík.
Íslensk hönnun og framleiðsla