Teething egg bleikt

3.191 kr

Teething egg

The teething egg var stofnað í bandaríkjunum árið 2015 af foreldrum sem fannst vanta góða og notkunarvæna vöru á markaðinn fyrir 3 mánaða barnið sitt sem hafði mikla þörf fyrir að naga það sem hendi komst næst.
Þau hönnuðu eggið með notagildi í huga, bæði fyrir barnið og fyrir foreldrana. The teething egg er auðvelt að þvo, en það má bæði skola með vatni, setja það í uppþvottavél og eins þolir það gufusótthreinsun.
Yfirborð eggsins er slétt og mjúkt og auðveldar því þrif töluvert ásamt því að vera mjúkt og gott fyrir litla góma. Eggið má líka setja í kæli og í frysti og því tilvalið til að kæla góm barnsins í tanntöku.
Allar vörur frá fyrirtækinu eru framleiddar í Bandaríkjunum, úr hágæða TPE efni sem er án allra aukaefna eins og BPA, phalat, blý og latex. Vörurnar eru FDA samþykktar og matvælaflokkaðar.
Vörurnar frá The teething egg uppfylla öryggiskröfur í Bandaríkjunum, Bretlandi, ESB, Kanada, Ástralíu og Nýja Sjálandi.
Vörurnar frá The teething egg hafa hlotið verðlaunin
Mom’s Choice Awards® og national parenting products awards.
Eggin koma í þrem litum eins og er, bleiku, bláu og gráu.

Björk Store er íslensk netverslun sem selur sérvaldar og vandaðar barnavörur.