Almennt
HNGALLERY áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra
verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á
vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta
pantanir símleiðis.
Afhending vöru
Allar vörur eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki
til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan
afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og
gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um
afhendingu vörunnar. HNGALLERY ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni
sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að
að hún er send frá HNGALLERY til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann
hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum
upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið.
Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda.
Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er
framkvæmd með útgáfu kreditnótu ef skilyrði eru uppfyllt og eftir að
varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Vinsamlegast hafið samband við HNGALLERY með spurningar.
Verð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.
Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem
kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki
afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.