Kertasandur & Novi Bakki - grár

10.608 kr 12.480 kr

Okkar nýjasta tvenna - Samstarfs verkefni HN Gallery & Fangaverks

Night Vanilla Kertasandur - hannaður af HN Gallery & Novi Bakki - fágaður bakki með fallegum línum & steináferð.

Hönnun með tilgang - með því að kaupa þessa vöru ertu ekki aðeins að skreyta heimilið þitt, þú ert að gefa einhverjum annað tækifæri.

Fyrir þá sem þekkja ekki verkefnið - þá eru vörur Fangaverks framleiddar af föngum í fangelsum landsins. Vinnustaðir í fangelsum sem framleiða vörur eru hugsaðir sem hluti af grunnstarfi fangelsana til þess að útvega vistmönnum störf á meðan fangavist stendur.

ATH. Einungis má þurrka af Novi bakkanum með rökum klút.

14 daga skilaréttur
Öruggar greiðsluleiðir
Hægt er að sækja eða fá sent

Kertasandur – ný og falleg leið til að njóta kerta

Breyttu hvaða skál sem er í glæsilegt kerti á augabragði. Helltu kertasandinum í skál, settu kertaþráðinn í og kveiktu – einfalt, fallegt og fullkomið til að skapa hlýlega stemningu á heimilinu.

Stílhreint, tímalaust og einstaklega auðvelt í notkun. Ný og spennandi leið til að upplifa kertaljós.