Samfella og buxur - Fiðrildi með pífu
Samfella og buxur - Fiðrildi
Nýja ungbarnavörulína HN Gallery er unnin í samstarfi við Cornelli Kids. Hugsunin á bakvið hönnunina er að bjóða uppá gæða barnafatnað sem uppfyllir öll þau þægindi sem við viljum hafa fyrir litlu krílin okkar!
Í vörulínunni er m.a. að finna heimferðarföt - sem okkur fannst vanta meira úrval af á markaðinn, stærðir frá 50!
Settið er saumað úr gæða lífrænni bómull sem er með GOTS og OEKO-TEX vottun.
Við hönnun vörulínunnar var tvennt sem mér fannst alveg nauðsynlegt að huga að í ungbarnafatnaði, að hafa smellur í hálsmáli svo það sé auðvelt að klæða barnið í og úr flíkinni og hafa mjúkt og gott stroff svo barnið myndi ekki sparka sig ekki úr buxunum og svo að ermarnar myndu ekki fara fram fyrir litlar hendur.