Keramik kertastjaki Moomin
Fallegur hvítur kertastjaki úr keramik, skreyttur með ástsælu Moomin-persónunum. Einföld og falleg hönnun sem setur notalegan svip á heimilið og passar vel inn í hvaða rými sem er.
Kertastjakinn er fullkominn fyrir kósýkvöld, þegar kertaljósið fær að skapa hlýja og notalega stemningu. Hann er einnig frábær viðbót fyrir þá sem safna Moomin-vörum eða hafa sérstakt dálæti á þessum sígildu persónum Tove Jansson.
Falleg gjöf fyrir Moomin-aðdáandann eða einfaldlega notalegur kertastjaki til að njóta sjálf/ur.



